Fundargerð aðalfundar 2026
-


Norðurnes í Kjós - Endurtekinn aðalfundur 19.05.2026

  • Endurtekinn aðalfundur 19.05.2026
  • Lögmæti fundar
  • Fundur telst lögmætur ef minnst þriðjungur fulltrúa lóða mætir á fundinn. Heildarfjöldi lóða er 82. Boðað var til þessa fundar í kjölfar dræmrar mætingar á boðaðan aðalfund þann 6. maí. 
  • Þrátt fyrir að fjöldi fulltrúa lóða á þessum fundi sé eingöngu 22 telst hann engu að síður lögmætur.
  • Fundarstjóri
  • Fundarstjóri fundar var Jón Snædal.
  • Fundarritari
  • Alma Pálsdóttir
  • Málefni aðalfundar
  • Fundargerð síðasta fundar
  • Sigurður Stefánsson formaður fór yfir fundargerð síðasta fundar. Engar athugasemdir voru gerðar við fundargerð og telst hún því samþykkt.
  • Skýrsla stjórnar
  • Sigurður Stefánsson fór yfir skýrslu stjórnar. Eftirfarandi kom fram við yfirferð.
  • Veituskúr
  • Stefnt var að því að klára veituskúrinn, sem og var gert. 
  • Ákveðið var að setja ekki á fullan þrýsting á veitukerfið strax en Kári Harðarson hefur unnið í því síðan að auka örlítið þrýsting. Venjulegur þrýstingur á hverfi 2 eru 2bör en Kári Harðarson hefur prufað að auka þrýsting upp í 3bör.
  • Smá aðlaganir þarf að gera á veituskúr og verður komið inn á áætlaðan kostnað síðar á fundinum, undir umræðu um ársreikning.
  • Ræsa veginn og skurður
  • Ekki var farið í þær framkvæmdir.
  • Spurningar við skýrslu stjórnar
  • Dagsetning brennu - Brennu var frestað um einn dag vegna veðurs.
  • Lekinn við paradís - Lekinn sem var rætt um síðasta haust hefur verið fundinn, en byrjað er að leka aftur.
  • Sigurður Stefánsson sagðist ekki vilja setja meiri þrýsting á kerfið fyrr en meiri reynsla er komin og þá þurfa allir sumarbústaðaeigendur að vera meira vakandi yfir mögulegum leka.
  • Engar frekari spurningar voru við skýrslu stjórnar.
  • Ársreikningur - 1.05.2025 til 30.04.2026
  • Karl Athursson fór yfir ársreikning.
  • Karl sagði búið að endurskoða, staðfesta og samþykkja ársreikning. Eftirfarandi kom m.a. fram við yfirferð á ársreikningi.
  • Rekstrargjöld
  • Framkvæmdir og viðhald
  • Almennur rekstur
  • Efnahagsreikningur
  • Veltufjármunir
  • Ítrekað hefur verið reynt að innheimta útistandandi skuldir frá þremur fulltrúum lóða í félaginu. Næsta skref er að senda rukkun í formlega innheimtu.
  • Fyrirfram kostnaður = kostnaður fyrir næsta ár vegna úttektar heilbrigðiseftirlits á gæðum vatns.
  • Skammtímaskuldir
  • Ógreiddir reikningar = mánaðargjöld Sýn.
  • Vatnsveituframkvæmdir
  • Sigurður Stefánsson fór yfir kostnað. Framkvæmdir við hús voru meiri en áætlað var í upphafi og þá bættist m.a. við kostnaður vegna ræsingar umhverfis hús, og frá vegi að húsi. Kostnaðarauki var mestmegnis vegna breytinga á búnaði innanhúss og frágangs kerfa. Þá þurfti að kaupa þjónustu við uppsetningu og tengingu búnaðar, en engin hönnun lá fyrir í upphafi verks og þá hafi aðili sem ætlaði að aðstoða við þessa framkvæmd veikst og því ekki geta aðstoðað. Einnig var mikill kostnaður fólginn í tengslum við grunn húss.
  • Kári Harðarson sagði Cortenstál hafa verið notað í húsið og sé þ.a.l. um mun betri endingu að ræða en ef gámur hefði verið keyptur undir hús. Kári Harðarson og Sigurður Stefánsson sögðu engar  fyrirmyndir hafa verið að svona húsi og þá hafi þurft að takast á við ýmsar áskoranir, t.a.m. í tengslum við frágang búnaðar og festingar.
  • Fundaraðili úr sal hrósaði Sigurði og Kára og sagði um vönduð vinnubrögð og frágang að ræða, sem og lágmarks kostnað. 
  • Sigurður Stefánsson og Kári Harðarson sögðu til lausnir við afleiðingum frosts og öðrum atvikum er hafa komið upp. Kári Harðarson sagði líklega best að grafa upp úr stíflu annað hvert ár, og þá allra best hvert ár, þar sem það komi þá í veg fyrir þessi vandamál í tengslum við frost.
  • Sigurður Stefánsson sagði kostnað per lóð standa í 347.358kr. en hann fari líklegast í 370þús.kr.
  • Greiða þarf fyrir úttekt heilbrigðiseftirlits á gæðum vatns ár hvert. Skoðað verður hvort hluti kostnaðar verði færður undir rekstrarkostnað.
  • Sigurður Stefánsson sagði gjöldin hærri en tekjur vegna þessarar miklu fjárfestingar í vatnsveitu fyrir félagið. 
  • Girðingar
  • Ekki var þörf á að fara í framkvæmdir vegna girðinga á svæði. 
  • Engar athugasemdir voru gerðar við samþykkt reiknings og telst hann því samþykktur
  • Björgvin Hauksson og frú fengu þakkir fyrir vinnu.
  • Stjórn og skipan í nefndir
  • Sigurður Stefánsson ætlar ekki að kefa kost á sér til áframhaldandi starfa. Í máli hans kom fram að starfið hafi bæði verið skemmtilegt, sem og erfitt, en umfang starfsins og eðli samskipta við einstaka aðila á svæðinu hefði á stundum reynst íþyngjandi, og lagði hann áherslu á mikilvægi þess að stjórnarstörf í sjálfboðavinnu njóti stuðnings og virðingar félagsmanna.
  • Ástþór Guðmundsson á lóð númer 49 hefur boðið sig fram sem formann og var hann samþykktur. Stjórnina skipa nú eftirfarandi aðilar:
  • Snorri P. Snorrason, lóð nr. 77
  • Kári Harðarson, lóð nr. 47
  • Alma Pálsdóttir, lóðir nr. 89 og 91(nú 89)
  • Eftirfarandi varamenn buðu sig fram og voru samþykktir.
  • Ragnhildur Gyða Magnúsdóttir, lóð nr. 73
  • Halldór Jóhannesson, lóðir númer 28 og 29
  • Skoðunarmenn verða áfram Björgvin Hauksson og frú á lóð nr. 33
  • Heiðar Páll, lóð nr. 73, sagðist ekki hafa tíma til þess að sinna brennustörfum áfram. Ákveðið var að Kári Harðarson, lóð nr. 47, finni aðila til að sinna þessu hlutverki á næsta ári.
  • Framlagning rekstrar-, fjárfestingar- og peningastöðu 2025-2026
  • Sigurður Stefánsson fór yfir fjárfestingaráætlun og tillögu að kostnaði á næsta tímabili.
  • Snjómokstur
  • Borin var fram tillaga um að festa snjómokstur alla föstudaga, laugardaga og sunnudaga, til næstu þriggja ára. Kostnaður á ári verður 1500þús.kr og þá kemur til viðbótar greiðsla upp á 1millj.kr núna sem snjómoksturs fyrirtækið mun nota til þess að fjárfesta í snjóblásturstæki. Heildarkostnaður fyrir félagið verður þ.a.l. 5,5millj.kr fyrir snjómokstur næstu þrjú árin. Með þessu fyrirkomulagi og samþykkt er snjómokstur fyrir félagið í forgangi, og ofar í forgangsröð en mokstur Kjósarskarðs. Kostnaður á ári pr. lóð er um 30þús.kr. Engin hækkun verður á kostnaði, utan vísitöluhækkunar.
  • Tillaga að snjómoksturssamning til næstu þriggja ára að heildarupphæð 5,5millj.kr. var samþykkt.
  • Engar athugasemdir voru við framlagningu rekstrar-, fjárfestingar- og peningastöðu 2025-2026 og telst það því samþykkt.
  • Breyting á samþykktum
  • Borin var fram tillaga um breytingu á 7. gr. þannig að aðalfundur skuli haldinn fyrir 15. maí í stað 1. maí. 
  • Tillagan var samþykkt.
  • Önnur mál
  • Brennumál
  • Brennan er haldin á laugardegi um Verslunarmannahelgi skv. fundarstjóra. Bletturinn er hreinsaður og ekki skal byrjað að safna í hauginn fyrr en næsta vor.
  • Ábending kom um að umgengni á svæði hafi versnað þegar Sorpu var lokað og aðgengi þar að hert. Rætt var um mögulegar leiðir til úrbóta. Líklega best að setja keðju fyrir og upplýsingaskilti. 
  • Hlið og netsamband
  • Nettenging er verri eftir að 5G kom inn. Stundum virkar hliðið og stundum ekki. Ætlun er að setja upp öflugri senda til þess að bæta samband.
  • Hvað varðar öryggishlið þá eiga allir eigendur sumarbústaðaalóða að hafa lykil að svæði. Þá sem vantar lykil skulu hafa samband við stjórn.
  • Rætt var um möguleika á að koma fyrir öryggishliði á neðra svæði.
  • Samfélagsstyrkir Kjósarhrepps
  • Ábending barst frá fundaraðila um að mögulegt væri að sækja um samfélagsstyrk frá Kjósarhrepp og nýta styrk til þess að gera t.a.m. göngustíga, kaupa leiktæki á svæðið fyrir börn, o.s.frv. Ákveðið var að skoða þetta og sækja um.
  • Viðhald göngustíga
  • Hafþór Bjarnason, lóð nr. 76, hefur undanfarið verið að merkja göngustíga og sagðist gjarnan vilja nota vélina sína til þess að búa til göngustíga og bæta.
  • Sigurður Stefánsson bar fram tillögu um að Jón komi með hlass af möl sem Hafþór geti þá nýtt til þessara góðu verka. Sú tillaga var samþykkt og Hafþóri hrósað og þakkað fyrir ómetanlegt og vel unnin störf fyrir félagið.
  • Eldvarnir
  • Hvatning barst frá fundaraðila um að allir félagsmenn kaupi klöppur og setji á auðsjáanlegan og aðgengilegan stað á húsin sín. Einnig barst ábending um að fara yfir klöppur á svæði, sem og kynna fyrir félagsmönnum hvar klöppur eru staðsettar. Rætt var um úttekt slökkviliðs á svæði og öryggi m.t.t. mögulegs bruna.
  • Stuðtæki/hjartatæki
  • Ábending barst frá fundaraðila að fjárfesta í hjartastuðtæki.
  • Umgengni á svæði
  • Mikil óánægja er meðal félagsmanna um umgengni nokkurra aðila á svæði. Sigurður Stefánsson fór á fund með skipulagsfulltrúa og virðist skipulag ekki geta tekið neitt á þessu þrátt fyrir ítreikaða beiðni.
  • Ábending barst frá fundaraðila að um væri að ræða framtaksleysi hjá skipulagsyfirvöldum og ætti að halda áfram að kalla eftir viðbrögðum og aðgerðum frá yfirvöldum.
  • Stjórnin mun skoða hvaða möguleikar eru í stöðunni.
  • Samskiptasáttmáli
  • Alma Pálsdóttir sagði að sínu mati þörf á að bæta samskipti í millum félaga í sumarbústaðafélaginu, bæði á samskiptasíðu félagsins á facebook sem og í eigin persónu. Alma fór yfir drög að samskiptasáttmála sumarbústaðafélagsins og var ákveðið að leggja hann fram til samþykktar fundaraðila, sem og var gert og var sáttmálinn samþykktur.
  • Alma mun setja samskiptasáttmála inn á heimasíðu félagsins og þá var ákveðið að setja skilyrði um samskipti félagsmanna á síðu félagsins á Facebook, en þeir sem ekki virða sáttmálann verða fjarlægðir af þeirri síðu.
  • Óásættanleg framkoma
  • Í kjölfar umræðu um samskipti og samþykkt samskiptamála kom til orðaskipta milli félagsmanns og stjórnar. Einnig fól framganga viðkomandi félagsmanns í sér ógnandi framkomu og hegðan gagnvart öðrum fundaraðilum á fundi. Formaður gerði ítrekað athugasemd við framgöngu viðkomandi og óskaði eftir að umræðan færi fram með málefnalegum hætti. Þegar það bar ekki árangur var viðkomandi greint frá afstöðu stjórnar og félags; að svona framkoma ætti ekki heima í þessu sumarbústaðafélagi, né annars staðar, og að viðkomandi stæði til boða að segja sig formlega úr aðild að félagi. Beðið er formlegrar ákvörðunar frá viðkomandi um áframhaldandi aðild að sumarbústaðafélagi.