
Fréttir
Aðalfundur 202317d
Aðalfundur sumarbústaðafélagsins Norðurnes verður haldinn miðvikudaginn, 31. maí kl 19:00 að Vesturvör 36. Kópavogi.
Dagskrá:
- Fyrirhugaðar framkvæmdir sumarsins vegna vatnsveitu.
- Kynning/umræða um kostnaðaráætlun vegna vatnsveitu og fjármögnun
- Framkvæmdagjald fyrir vatnsveitu verður u.þ.b. 180.000 kr á lóð, skipt í 4 greiðslur.
- GSM hlið á svæði 1.
- Breytingar á stjórn.
- Umræða um leiksvæði, vatnsinntök o.fl.
- Skipan í nefndir. (Girðingarnefnd, brennunefnd)
- Venjuleg aðalfundarstörf.
Kveðja,
Stjórnin
Íbúafundur í KjósMay 02
Sveitarstjórn Kjósarhrepps boðar til íbúafundar 25. maí 2023 kl. 17:00 í Félagsgarði og sumarhúsaeigendur eru velkomnir.
Það verður meðal annars rætt um tilvonandi áætlanir að kveikja á hitaveituhemlum og því gæti verið áhugavert að mæta.
Stjórnin
Ný vefsíðaApr 16
Á 10 ára afmæli nordurnes.is síðunnar er komin glæný vefsíða í loftið.
Þessi nýja er einfaldari en sú gamla og nokkuð strípuð eins og er en ég vona að hún eigi eftir að fullnægja hlutverki sínu í gegnum næstu árin. Það vantar ennþá einhverja fítusa frá gömlu síðunni en ég mun bæta þeim við á næstu vikum.
Nonni
Vatnið að klárast í efri byggðumMar 14
Það er að verða vatnslaust I hverfinu. Við hvetjum fólk að fara sparlega með vatnið.
VatnslaustDec 26 '22
Það er vatnslaust í Norðurnesinu.Við viljum biðja fólk með heita potta að passa uppá að það sé ekki kveikt á rennsli á köldu vatni í þá og biðlum til allra að fara varlega með það litla kalda vatn sem gæti komið úr krananum og helst að sturta ekki niður úr klósettum.
Ef þið sjáið einhverja blauta bletti í umhverfi ykkar sem gætu bent til leka, vinsamlegast látið vita.
Stjórnin
Lokaður vegur að efri svæðumSep 27 '22
Kæru Norðurnesingar.
Fyrirhugað er að rjúfa veginn í gilinu og skipta um ræsið klukkan 10:00 í fyrramálið miðvikudaginn 28 sept.
Gera má ráð fyrir að vegurinn verði lokaður til klukkan 15:00 sama dag.
Stjórnin
Fundargerð aðalfundarJun 16 '22
Fundargerðin fyrir nýafstaðinn aðalfund er nú aðgengileg á vefnum hérna. Meðfylgjandi skjöl eru aðgengileg hérna.Takið eftir að félagsgjald fyrir hverja lóð er nú 40.000 kr og verður sendir út greiðsluseðlar í heimabanka innan tíðar.
Stjórnin.